Um Arev 

Arev var stofnað árið 1996 og eru hluthafar þess eignarhaldsfélagið Arev ehf. (99.94%) og Jón Scheving Thorsteinsson (0.06%). Árið 2006 fékk Arev verðbréfafyrirtæki hf starfsleyfi Fjármálaeftirlitsins sem verðbréfafyrirtæki skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Starfsleyfi Arev verðbréfafyrirtækis tekur til viðskipta og þjónustu með fjármálagerninga sem felast í móttöku og miðlunar fyrirmæla frá viðskiptavinum og eignastýringu auk ráðgjafar til fyrirtækja um uppbyggingu eigin fjár, stefnumótun og skyld mál svo og ráðgjöf og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaup á þeim. Í dag eru þrír fastir starfsmenn hjá fyrirtækinu með víðfema reynslu í smásölu, fjármálum og bankaviðskiptum. Arev verðbréfafyrirtæki hefur áralanga reynslu í umsjón með eignastýringu og hefur innleitt vinnubrögð sem byggjast á faglegu eftirliti og skilvirkri vinnslu upplýsinga sem stuðla að trausti og tiltrú milli allra hagsmunaaðila. Aðalstyrkleiki fyrirtækisins liggur í samþættri reynslu á neytendavörumarkaði og fjármálalegri þekkingu.


Starfsmenn


Björn Jóhannesson, framkvæmdastjóri - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Björn Jóhannesson hóf störf hjá Arev árið 2006. Björn er hagfræðingur frá Luther College í Iowa í Bandaríkjunum og með meistarapróf í alþjóðahagfræði og fjármálum frá Brandeis University í Massachusetts í Bandaríkjunum. Björn starfaði hjá Fjármálaeftirlitinu á árunum 2002 til 2005. Frá 1999 til 2002 starfaði hann hjá PricewaterhouseCoopers í New York. Áður hafði hann starfað við heilsuhagfræði hjá Mayo Clinic í Minnesota og á fjárlagaskrifstofu Fulltrúardeildar Bandaríkjaþings (Congressional Budget Office) í Washington, D.C. Björn lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2007.


Jón Scheving Thorsteinsson, sérfræðingur - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Jón er með meistaragráðu í aðgerðarannsóknum frá Stanford University. Hann starfaði sem framleiðslustjóri og síðar sölu- og markaðsstjóri hjá Sól til ársins 1996.  Jón stofnaði Arev árið 1996 um ráðgjöf tengdri fyrirtækjum.  Jón réðist til starfa hjá Hagkaupum og síðar hjá Baugi þar sem hann stýrði erlendum fjárfestingum fyrirtækisins til  ársins 2003.  Árið 2004 stofnaði hann Arev Ltd. í Bretlandi en Arev var jafnframt starfrækt á Íslandi.  Arev verðbréfafyrirtæki fékk starfsleyfi frá FME á árinu 2006.

 


Sigurður Berntsson, sérfræðingur - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Sigurður hóf störf hjá Arev árið 2008. Sigurður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.Sigurður hefur mikla reynslu af rekstri og endurskipulagningu. Hann starfaði sem skrifstofustjóri og síðar sem rekstrarstjóri landvinnslu hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar. Einnig var hann fjármálastjóri Computer 2000, síðar Tölvudreifingar og sem fjármálastjóri Rúmfatalagersins. Síðustu misseri hefur Sigurður starfað sem fjármálastjóri Lagersins ehf. og haft umsjón með rekstri og fjármögnun samstæðunnar. Sigurður hefur setið í fjölda stjórna, innanlands sem og utan.


 

Austris Krumins, sérfræðingur - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Austris sinnir sérverkefnum hjá Arev.  Hann útskrifaðist með masters gráðu frá University of Latvia árið 2001 og BS gráðu frá sama háskóla. Hann vann hjá Jysk Group á Eystrasaltssvæðinu sem fjármálastjóri, rekstrarstjóri og stjórnarmeðlimur. Austros vann einnig sem fjármálastjóri og stjórnarmeðlimur The Pier Group á Balkanskaga. Árin 2001 til 2004 vann hann fyrir McCann-Erickson Riga Group sem fjármálastjóri og áður sem verkefnastjóri fyrir Norway-Latvia business development fund. 1997-1999 vann Austris sem endurskoðandi og ráðgjafi fyrir PricewaterhouseCoopers.

 


Stjórn


Árni Sv. Mathiesen, stjórnarformaður
Árni Sv. Mathiesen var frá árinu 1991 til 2007 framkvæmdarstjóri og eigandi Bedco & Mathiesen Ltd. sem sérhæfði sig á sviði innflutnings og sölu á skrifstofuvörum fyrir sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.  Auk þess hefur hann unnið með öryggisvörur fyrir fyrirtæki, stofnanir og banka. Áður starfaði hann á sviði drykkjarvöruiðnaðar og var markaðsstjóri Hf. Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson. Árni er með meistaragráðu frá Háskólanum í Reykjavík í lögfræði (ML) ásamt Cand. oecon gráðu frá Háskóla Íslands

Þórður Bogason

Þórður varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund árið 1983. Cand. jur. frá Háskóla Íslands 1989. Hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 1996 og réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2007.
Þórður var lögfræðingur í lána- og innheimtudeild Tryggingastofnunar ríkisins 1989.  Hann var nefndaritari og alþjóðaritari í nefndadeild Alþingis 1989-92. Starfaði hjá EFTA í Brussel 1992-95. Deildarstjóri nefndadeildar Alþingis 1995-96. Einnig var hann forstöðumaður nefndasviðs Alþingis 1996-2000. Þórður var ritari utanríkismálanefndar 1995-99. Gekk til liðs við Hrein Loftsson hrl. um rekstur lögmannsstofunnar Lögmenn Höfðabakka árið 2000. Þórður var stundakennari í stjórnskipunarrétti við lagadeild Háskóla Íslands frá 1996. Hann hefur haldið nokkur námskeið um lagatækni og samningu lagafrumvarpa á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands og Stjórnsýslufræðslunnar. Önnur störf og nefndir: Nefnd sem samdi íslenskan staðal, ÍST 35, samningsskilmála um hönnun og ráðgjöf, 1989-1992. Nefnd um lagagögn á vefnum 1998-2000. Ritari landskjörstjórnar frá 1999 - 2004.


Jón Gunnar Bergs
Jón Gunnar Bergs er með lokapróf í vélaverkfræði og tölvunarfræði frá Háskóla Íslands auk MBA-gráðu frá Fuqua School of Business við Duke University í Bandaríkjunum. Jón Gunnar hefur starfað sjálfstætt sem rekstrarráðgjafi frá árinu 2000 en var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Íslenskrar erfðagreiningar þar sem hann bar ábyrgð á sölu og markaðssetningu ásamt stefnumótun og þróun. Áður en hann hóf störf hjá Íslenskri erfðagreiningu starfaði hann hjá McKinsey & Co í Bandaríkjunum sem ráðgjafi fyrir fjölmörg stór og meðalstór bandarísk fyrirtæki.