
Óháð verðmat fyrir fyrirtæki í fjárhagslegri endurskipulagningu.
Samkvæmt samkomulagi um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja er hægt að fá þriðja aðila til að leggja mat á virði fyrirtækja. Þetta getur verið mikilvægur þáttur í að tryggja að gætt sé jafnræðis við endurskipulagningu fyrirtækja.
Arev er óháð verðbréfafyrirtæki með starfsleyfi í fyrirtækjaráðgjöf frá Fjármálaeftirlitinu síðan 1996. Fyrirtækið hefur síðastliðin áratug unnið fyrir alla helstu banka landsins, flestar skilanefndir og yfir 200 fyrirtæki í verslun, iðnaði, útgáfu og sjávarútvegi. Starfsmenn hafa víðtæka reynslu út fyrirtækjarekstri og samningagerð.
