
Arev NI kaupir Next að fullu
Einkafjármagnssjóðurinn Arev NI slhf. eignaðist að fullu tískuvöruverslunina Next hér á landi í október. Next rekur eina verslun í Kringlunni á 1.500 fermetrum að ótöldum lager og skrifstofu. Um 30 manns starfa í Next.
Haraldur Bergsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Next og núverandi framkvæmdarstjóri Sævar Karls, segir nóg að gera. „Við höfum verið að taka á móti stórum sendingum og fáum eina af þeim stærstu í næstu viku. Við erum að fylla búðina og stefnum á að eiga hér mjög góð jól enda góð blanda verðs og vöruúrvals um þessi jól.“ Haraldur segir reksturinn ganga ágætlega og móðurfélagið, Dagsól, skulda lítið. Arev lagði nýtt fé í reksturinn við kaupin.
Sverrir Berg Steinarsson og Ragnheiður Anna Jónsdóttir stofnuðu Next á Íslandi og áttu verslunina upphaflega í gegnum Nordex, dótturfélag Árdegis. Félagið var gjaldþrota í kringum bankahrunið fyrir tveimur árum. Arev keypti Next úr þrotabúi Nordex og seldi þeim Sverri og Ragnheiði minnihluta í desember 2008.
Arev NI og AUÐUR I hafa samið um kaup AUÐAR I á Yggdrasil af Arev NI.
Ari Hultqvist ráðinn framkvæmdastjóri Veru Lífar
Nýr framkvæmdarstjóri, Ari Hultqvist, hefur verið ráðinn til starfa hjá Veru Líf. Vera Líf (verslunin Yggdrasill á Skólavörðustíg) er með lífrænt ræktaðar matvörur, snyrtivörur og hreinlætisvörur. Stjórn fyrirtækisins helst óbreytt en í henni sitja Björn Jóhannesson og Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir.
Björg – Nýr einkafjármagnssjóður stofnaður
Arev NI einkafjármagnssjóður kaupir meirihluta í verslun Next í Kringlunni
|
- Verslun í eigu Arev valin „besta litla verslunin í London“
- Davíð Steinn Davíðsson ráðinn sem sérfræðingur hjá Arev verðbréfum
- Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir ráðin sem fjárfestingarstjóri til Arev verðbréfa
- Sól kaupir Emmessís
- Icebank og Arev stofna nýjan einkafjármagnssjóð: Þrír milljarðar til fjárfestinga í heildsölu, smásölu og þjónustu
- Verslun í eigu Arev valin „besta litla verslunin í London“
- Davíð Steinn Davíðsson ráðinn sem sérfræðingur hjá Arev verðbréfum
- Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir ráðin sem fjárfestingarstjóri til Arev verðbréfa
- Sól kaupir Emmessís
- Icebank og Arev stofna nýjan einkafjármagnssjóð: Þrír milljarðar til fjárfestinga í heildsölu, smásölu og þjónustu

AUÐUR I fagfjárfestasjóður slf. og einkafjármagnssjóðurinn Arev NI slhf. hafa náð samkomulagi um kaup AUÐAR I á 100% hlut í félögunum Yggdrasil ehf. og Veru líf ehf. Félögin voru áður í eigu Arev NI einkafjármagnssjóðsins.
Arev verðbréfafyrirtæki hf. hefur tekið að sér stýringu nýs úrvinnslusjóðs. Hinn nýi sjóður mun bera nafnið Björg og er hann einkafjármagnssjóður í fullri eigu Sparisjóðabanka Íslands hf.
Arev NI slhf., hefur keypt rúmlega helmingshlut í rekstrarfélagi Next í Kringlunni, Dagsól ehf. Meðeigendur Arev NI í félaginu eru Ragnhildur Anna Jónsdóttir og Sverrir Berg Steinarsson, en Ragnhildur Anna hefur verið framkvæmdastjóri í verslun Next á Íslandi frá upphafi rekstrar hérlendis.