
Sjóðir
Arev NI slhf.
Arev NI er einkafjármagnssjóður sem var stofnaður í febrúar 2007. Sjóðurinn fjárfestir í óskráðum vaxtarfyrirtækjum, aðallega á sviði heildsölu, smásölu og þjónustu. Áhersla er á að sjóðurinn sé leiðandi og mótandi fjárfestir sem tekur virkan þátt í rekstri og uppbyggingu fyrirtækja sinna. Fjárfestingarstjóri fylgist náið með stöðu og árangri fyrirtækjanna og fulltrúi sjóðsins situr ávallt í stjórn þeirra fyrirtækja sem sjóðurinn hefur fjárfest í.
Sjóðurinn leitar eftir fjárfestingartækifærum og tekur á móti fyrirspurnum
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
.
Eigendur: Eignarhaldsfélagið Arev og Sparisjóðabanki Íslands.
Fjárfestingarráð: Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir og Björn Jóhannesson.
Fjárfestingarstjóri: Björn Jóhannesson.
- Fjárfestingar
- Fjárfestingasaga
Eignarhaldsfélagið Björg slhf.
Björg, einkafjármagnssjóður, var stofnaður í nóvember 2009. Sjóðurinn er úrvinnslusjóður í eigu Sparisjóðabanka Íslands hf. Sjóðurinn byggist á yfirtöku eigna gamla Icebank hf. og er hann lokaður fagfjárfestasjóður. Fjárfestingarstjóri fylgist náið með stöðu og árangri fyrirtækjanna og fulltrúi sjóðsins situr ávallt í stjórn þeirra fyrirtækja sem sjóðurinn hefur fjárfest í.
Eigendur: Sparisjóðabanki Íslands.
Stjórn: Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, stjórnarformaður; Björn Jóhannesson, meðstjórnandi; Guðmundur Auðunsson, meðstjórnandi.
Fjárfestingarstjóri: Björn Jóhannesson.
